S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
28.11.2003 | 11:57 | bl
Átta kvennalið hafa tryggt sér ÓL sæti
Fyrir utan heimsmeistara Bandaríkjanna og gestgjafana Grikki, þá hafa Tékkland, Rússland, Spánn, Ástralía, Nýja Sjáland og Brasilía tryggt sér þátttökurétt í gegnum álfukeppnir. Fjögur sæti eru enn laus. Þrjú þeirra fá þrjár efstu Asíu þjóðirnar í álfukeppni Asíu, sem fram fer í Japan 13.-19 janúar nk. og Afríkumeistararnir sem krýndir verða eftir álfukeppni Afríku, sem haldin verður í Mozambique 18.-28. desember nk. Löndin tólf verða dregin í tvo sex liða riðla. Fjórar efstu þjóðirnar úr hvorum riðli munu síðan komast áfram í fjórðungsúrslit, þar sem leikið verður með útsláttarfyrirkomulagi, eins og í undanúrslitunum. |