© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.11.2003 | 9:41 | phs
FIBA samþykkir kvennaboltann
Miðstjórn FIBA hefur samþykkt tillögu þess efnis að frá og með 1. október 2004 skuli meistaraflokkur kvenna leika með bolta nr. 6 eða svokölluðum kvennabolta.

Á Íslandi, sem og í fleiri Evrópulöndum og í USA, hafa konur leikið með bolta nr. 6. FIBA hefur hinsvegar ítrekað hafnað tillögum um að taka upp kvennaboltann á heimsvísu. Rökin hafa í meginatriðum verið þau að það sé erfitt að fara fram á það við fátækari hluta heimsins að keyptar séu tvær gerðir að boltum.

Þetta gerði það að verkum að kvennalandsliðin léku með karlabolta nr. 7 í öllum alþjóðlegum mótum en kvennaboltinn var notaður í deildarkeppninni innanlands. Olli það stundum óþægindum að skipta úr kvennaboltanum yfir í karlaboltann fyrir alþjóðleg verkefni.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ármenningar fagna langrþáðum Íslandsmeistaratitli með því að tollera félaga sinn, Birgi Örn Birgis, sem var að fagna sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli á 17 ára ferli.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið