S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
4.11.2003 | 14:01 | ór
Áfram Keflavík !
Nei, svo er ekki, þótt svona kynnu einhverjir að spyrja sem vilja líta neikvætt á málin. Hið rétta er hinsvegar sá boðskapur formannsins að í þeim Evrópuleikjum sem framundan eru hjá liði Keflavíkur nú í nóvember og desember, eigi íslenskir unnendur körfuknattleiks að snúa bökum saman og styðja við bakið á íslensku félagsliði sem tekur þátt í alþjóðlegri keppni. Það er sárara en margir gera sér grein fyrir hversu erfitt er fyrir KKÍ að standa frammi fyrir því að geta ekki boðið upp á landsliðsverkefni þetta árið, vegna fyrirvaralítilla skipulagsbreytinga hjá FIBA í Evrópu - skipulagsbreytinga sem kipptu grundvelli undan undirbúningsverkefnum sumarsins, svo ekki sé minnst á leikina heima og heiman sem leika átti í nóvember og janúar. Vegna breytinganna verða leikirnir ekki fyrr en í september 2004 og 2005. Það er því lán í óláni að lið Keflavíkur hefur á sama tíma sýnt það hugrekki að skrá sig til þátttöku í Evrópukeppni félagsliða. Ætti það að svala að einhverju leyti hungri íslenskra körfuknattleiksunnenda á alþjóðlegum leikjum þetta árið. Íslensk körfuknattleikshreyfing hefur sýnt það þegar erfiðleikar steðja að þá snúa menn bökum saman sem ein heild. Keflavík - liðið sem sumir virðast elska að hata - eru nú fulltrúar OKKAR, og þar með íslensks körfuknattleiks. Ég hvet alla til þess að fjölmenna á heimaleiki Keflavíkurliðsins í keppninni og sýna í verki stuðning við þetta verkefni, samhliða því að njóta þess sem Evrópskur körfuknattleikur hefur upp á að bjóða í dag. Því endurtek ég hér...Áfram Keflavík ! Gangi ykkur vel. Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ. |