S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
14.10.2003 | 14:04 | bl
Dregið í riðla á ÓL 8. nóvember
Alls verða 12 þjóðir með í körfuknattleikskeppninni í Aþenu, þar af fimm þjóðir frá Evrópu. Þar verða fremstir í flokki nýbakaðir Evrópumeistarar Litháen, auk þess Ítalía, Spánn, Serbía og Svartfjallaland og gestgjafarnir Grikkland. Frá Ameríku: Bandaríkin, Argentína og Puerto Ríkó. Frá Asíu: Kína, Frá Afríku: Angóla og frá Eyjaálfu: Ástralía og Nýja Sjáland. Liðunum verður skipt í tvo sex liða riðla og síðan komast fjögur efstu liðin áfram í fjórungsúrslit. Eftir það verður keppt með útsláttarfyrirkomulagi. Búist er við að Bandaríkin tefli fram mjög sterku liði, skipuðu bestu leikmönnum NBA-deildarinnar. |