S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
19.9.2003 | 16:37 | bl
Endanleg niðurröðun leikja komin
![]() Alls er um að ræða tæpa 1.200 leiki, en fyrstu drög að niðurröðun voru gefin út maí. Síðan hefur forsvarsmönnum félaganna og forstöðumönnum íþróttamannvirkjanna verið gefinn kostur á að gera athugasemdir. Alls hafa verið send út 5 drög að niðurröðun leikja. Íslandsmótið hefst fimmtudaginn 2. október með leik Stjörnunnar og ÍS í 1. deild karla, en helgina þar á eftir verða fleiri leikir í 1. deild karla og leikið í einum af sex riðlum 2. deildar karla. Þá verður meistarakeppni KKÍ háð sunnudaginn 5. október í Keflavík. Fyrstu leikirnir í 1. deild kvenna verða miðvikudaginn 8. október og daginn eftir eða 9. október eru fyrstu þrír leikirnir í Intersport-deildinni. Daginn eftir eða föstudaginn 10. október lýkur fyrstu umferð Intersport-deildarinnar með þremur leikjum. Fyrsta umferð fjölliðamótanna verður 4.-5. október og hefur dagskrá þeirrar helgar þegar verið send út til félaganna. Helgina 10.-12. október verður Íslandsmótið komið á fulla ferð en alls eru 35 deildarleikir á dagskrá þá helgi frá föstudegi til sunnudags. Niðurröðun leikja er komin á KKÍ-vefinn, hér til hægri, undir úrslit og eins nafni viðkomandi deildar. |