S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
|||
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
2.9.2003 | 22:57 | óój
Íslendingur í NBA-deildinni á ný - Jón Arnór samdi við Dallas Mavericks
Jón Arnór var í nýliðavalinu í sumar en var þá ekki valinn en það var ljóst frá upphafi að hann var inn í framtíðarplönum Dallas Mavericks. Jón Arnór er nú orðinn einn fjölmargra erlenda leikmanna hjá Dallas-liðinu en þar eru einnig leikmenn frá Þýskalandi (Dirk Nowitzki), Kanada (Steve Nash), Mexíkó (Eduardo Najera), Frakklandi (Tariq Abdul-Wahad) and Tékklandi (Jiri Welsch). Dallas leikur fyrsta leikinn á undirbúningstímabilinu gegn Utah Jazz sem fram fer í Mexíkóborg 5. október en fyrsti leikur liðsins á tímabilinu verður gegn LA Lakers í Staples Center 28. október sem verður einmitt fyrsti leikur Karl Malone og Gary Payton með Lakers-liðinu. Það má finna dagskránna hjá Dallas næsta vetur hér. Á síðasta tímabili lék Jón Arnór með Trier í þýsku Bundesligunni og skoraði þar 13 stig að meðaltali auk þess að gefa 2.7 stoðsendingar og taka 2.8 fráköst í leik. Jón Arnór var þriðji í stigaskorun hjá Trier og annar í stoðsendingum, stolnum boltum (1,32 í leik) og þriggja stiga körfum. Eftir því sem næst verður komist verður Jón Arnór fjórði Norðurlandabúinn til að leika í NBA-deildinni. Auk Pétur Guðmundssonar hafa leikið þar Norðmaðurinn Torgeir Bry (3 leiki fyrir LA Clippers) og Finnann Hanno Mättölä sem lék um skeið með Atlanta Hawks. |