S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
6.8.2003 | 10:46 | bl
Stærsti sigur 18 ára liðsins
Leikurinn í gær var 44. landsleikur Íslands í 18 ára flokki kvenna. Þetta var aðeins 13. sigurinn því 31 leikur hefur tapast í þessu aldursflokki hingað til. Stigamunurinn fyrir leikinn í gær var því óhagstæður, 2152-2845. Liðið setti einnig stigamet í leiknum því flest stig í einum leik fyrir leikinn í gær voru 90 en meðaltalið 50 stig. Þá var stigamunurinn í hverjum leik óhagstæðum uppá -16,1 stig fyrir leikinn í gær, en eftir stórsigurinn á Gíbraltar er muninn nú kominn í -13,9 stig. Nú er bara að sjá hvort þessi munur á eftir að minnka enn frekar í mótinu. Hægt er að skoða landsleikjaskrár allra landsliða Ísland hér á vefnum. Ísland mætir Andorra kl. 19:00 í kvöld, en þar á undan leika Malta og Gíbraltar kl. 17:00. mt: Úr leik Íslands og Gíbraltar í gær. |