S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
8.8.1999 | 17:42 | -
Jón Arnór kosinn bestur
Íslendingar luku keppni í Evrópukeppni unglingalandsliða, 18 ára og yngri, í dag með sigri á Hollendingum 54-48. Helgi Margeirsson var stigahæstur með 14 stig, Jakob Sigurðsson skoraði 11, Jón Arnór Stefánsson 9, Hjalti Kristinsson 8 (11 fráköst), Þórður Gunnþórsson 5, Ómar Sævarsson 4 (7 fráköst) og Andri F. Ottóssn 3 stig.
Í lok mótsins var Jón Arnór Stefánsson kosinn besti leikmaður mótsins auk þess að vera valinn í Stjörnulið mótsins. Lokastaða mótsins varð sú að Belgar urðu í 1. sæti með 4 sigra, Íslendingar í 2. með 4 sigra, Tyrkir í 3. einnig með 4 sigra, öll þessi lið komast í næstu umferð Evrópukeppninnar. Hollendingar, Portúgalir og Írar sitja eftir. |