S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
6.6.2003 | 9:36 | phs
Bronsið í höfn eftir sigur á Lúxemborg
Í þriðja leikhluta sótti lið Lúxemborgar á íslensku stúlkurnar og minnkuðu forskot íslenska liðsins niður í tvö stig. Í fjórða leikhluta komust Lúxemborgarar 5 stigum yfir 48-53 en 8 stig Signýjar Hermannsdóttur í röð héldu Íslandi inn í leiknum og gott betur því liðið náði þriggja stiga forystu 56-53. Á lokamínútunum var spennan mikil, mistök á báða bóga en íslenska liðið hélt haus og innbyrti 4 stiga sætan sigur á Lúxemborg 60-56 og þar með bronsverðlaun á leikunum. Miðherjar íslenska liðsins léku frábærlega í dag, þær Erla Þorsteinsdóttir og Signý Hermannsdóttir sem skoruðu samtals 29 stig og tóku 22 fráköst. Þá nýtti Rannveig Randversdóttir tækifæri sitt þegar Hjörtur Harðarson þjálfari setti hana í byrjunarliðið og skoraði 11 stig og nýtti 5 af 6 skotum sínum. Þriggja stiga skotin gengu hinsvegar alls ekki og gerði liðið ekkert stig úr 11 tilraunum. Atkvæðamestar hjá Íslandi voru Erla Þorsteinsdóttir með 17 stig og 8 fráköst (5 sóknarfráköst), Signý Hermannsdóttir 12 stig, 14 fráköst, 4 stolnir boltar og 3 varin skot. Rannveig Randversdóttir 11 stig á 15 mínútum, Hanna Kjartansdóttir 5 stig, Alda Leif Jónsdóttir 5 stig, Hildur Sigurðardóttir 4 stig, 6 fráköst og 4 stolnir boltar, Birna Valgarðsdóttir, Svandís Sigurðardóttir og Helga Þorvaldsdóttir gerðu allar 2 stig. |