S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
4.6.2003 | 18:39 | phs
Sigur gegn San Marínó
Íslenska liðið leiddi allan leikinn fram í fjórða leikhluta þegar San Marínómönnum tókst að jafna leikinn og komast yfir þegar aðeins 2 mínútur voru til leiksloka. Lokamínúturnar voru æsispennandi og þegar 14 sekúndur voru eftir var staðan 65 - 64 fyrir Ísland og íslenska liðið átti boltann undir eigin körfu. Damon fékk boltann, tvídekkaður og átti erfiða sendingu á Loga sem náði knettinum en dæmd á hann skref. San Marínómenn áttu svo skot sem dansaði á körfuhringnum en fór ekki ofaní. Magnús Þór Gunnarsson tók frákastið og var brotið á honum í sama mund og lokaflautan gall. Magnús setti niður bæði vítaskotinn. Þessa leiks verður ekki minnst fyrir áferðafallegan körfubolta, en sigur vannst og það er það sem skiptir máli í þessu móti. Markmiðið er enn það sama, að vinna gull á leikunum. Liðið mætir Andorra á morgun kl. 15.30 og stúlkurnar leika við Kýpur kl. 09.00 Stigaskor Íslands; Damon 23, Helgi 10, Magnús 9, Logi 8, Páll Axel 6, Baldur 4, Jón Nordal 4 og Gunnar 2. Myndin er af Helga Magnússyni sem átti mjög góðan leik í kvöld. |