© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.5.2003 | 7:30 | bl
AND 1 Körfuboltanámskeið 3.-6. júní
Hin árlegu And 1 körfuboltanámskeið fyrir stelpur og stráka á aldrinum 12 til 18 ára verða haldin í KR-húsinu 3. til 6. júní frá 17.00 til 20.30. Námskeiðin verða undir stjórn Ágústs Björgvinsonar, unglingalandsliðsþjálfara og Péturs Guðmundssonar, eina Íslendingsins sem leikið hefur í bandarísku NBA
deildinni.

Ágúst hefur mikla reynslu sem yngri flokka þjálfari og var einnig yngsti úrvalsdeildarþjálfarinn síðastliðinn vetur, þegar hann tók við þjálfun mfl. Vals. Hann er aðstoðarþjálfari unglingalandsliðs drengja, aðalþjálfari stúlknalandsliðsins og hefur unnið við fjölda æfingabúða í Bandaríkjunum. Pétur hefur m.a. verið með námskeið fyrir hávaxna stráka í íslenskum körfubolta.

Á námskeiðunum verður lögð áhersla á undirstöðuatriði auk leikja og ýmis konar keppni. Misstu ekki af And 1
körfuboltanámskeiðunum. Á undanförnum árum hafa yfir 400 leikmenn komið á námskeiðin.

Vegleg And 1 verðlaun verða veitt þeim sem skara fram úr. Gjald fyrir námskeið er kr. 6.500 kr

Skráning og frekari upplýsingar veitir Ágúst á E-maili asb@visir.is og Pétur Guðmundsson hjá KKÍ í sima 514-4105.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Margrét Kara Sturludóttir á fleygiferð í átt að körfunni í leik með KR gegn Grindavík í úrslitakeppni kvenna 2008-2009. KR vann Grindavík 2-1 í seríunni og mætti Keflavík í undanúrslitunum þar sem þær unnu 3-0. Það voru svo Haukar og KR sem spiluðu til úrslita um titilinn þar sem Haukar unnu í oddaleik og urðu Íslandsmeistarar kvenna 2009.

KR og Haukar mættust svo í úrslitarimmunni um Íslandsmeistartitiliinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið