© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.5.2003 | 17:50 | bl
AND 1 körfuboltabúðir í KR-heimilinu í byrjun júní
AND 1 körfuboltabúðir verða haldnar í DHL-höllinni við Frostaskjól dagana 3.-6. júní nk. eða frá þriðjudegi til föstudags. Búðirnar eru ætlaðar fyrir 12-18 ára krakka og standa frá 17:00-20:30 á kvöldin. Verðið í búðirnar er 6.500 kr.

Yfirþjálfari körfuknattleiksbúðanna er Ágúst S. Björgvinsson.

Ágúst hefur starfað við virtar körfuknattleiksbúðir í Bandaríkjunum svo sem Five star búðirnar (einar af elstu og virtustu körfuknattleiksbúðum í Bandaríkjunum) og körfuknattleiksbúðir Duke háskólans (Duke háskólinn var NCAA meistari 2001).

Uppbygging körfuknattleiksbúðanna í KR-heimilinu verða að fyrirmynd þessara bandarísku körfuknattleiksbúða. Meðal annars verður stöðvaþjálfun, fyrirlestrar og leikir.

Margir þekktir þjálfarar munu koma í heimsókn í körfuknattleiksbúðirnar.

Skráning og greiðsla fer fram við byrjun námskeiðs
Frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á netföngin: asb@visir.is


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið