S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
20.5.2003 | 15:07 | bl
Regnbogabörn og KKÍ vinna saman
Draumur regnbogabarna er þríþættur: 1) Að þjónustumiðstöð Regnbogabarna sem þjóni öllu landinu verði að veruleika í húsi stofnunarinnar að Mjósundi 10 í Hafnarfirði. 2) Að hægt verði að ráða sérfræðinga til að byggja upp og móta þá þjónustu sem helst ríður á að hafa til taks fyrir þá sem á þurfa að halda. 3) Að hægt verði að koma á laggirnar víðtækri þjónustu fyrir einstaklinga og hópa á landinu öllu, með því að bjóða upp á m.a. námskeið, fyrirlestra og fræðslufundi. Leikmenn og aðstandendur kkd. Þórs á Akureyri munu síðan leggja sitt af mörkum til fjáröflunarinnar með því að drippla í kringum landið og safna áheitum á dripplarana frá fyrirtækjum. Lagt verður upp frá Egilsstöðum í tveimur hópum föstudaginn 6. júní. Annar hópurinn fer norðurleiðina og hinn í suður. Stoppað verður á nokkrum stöðum og stendur KKÍ fyrir uppákomum þar, s.s. ýmis konar keppnum. Báðir hóparnir munu svo koma til Reykjavíkur upp úr hádegi þann 9. júní (annar í hvítasunnu). Þar verður tekið á móti þeim í Laugardalnum með Streetball móti og grillveislu. Söfnunin mun standa yfir í 3 vikur og verða nýjar auglýsingar sýndar í fjölmiðlum með einstaklingum úr ýmsum áttum. Í auglýsingunum kemur fram sérstakt söfnunarnúmer sem almenningur getur hringt í og stutt þannig við bakið á Regnbogabörnunum með sínu fjárframlagi. Við hvert símtal renna 1000 kr. til söfnunarinnar. Söfnunarsíminn er 511-2580 Reikningsnúmer Regnbogabarna er 301-26-50100 |