© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.5.2003 | 16:12 | bl
Damon í landsliðshópinn gegn Noregi
Ísland og Noregur mætast í þremur vináttulandsleikjum hér á landi dagana 23.-25. maí nk. Leikið verður í Keflavík, Reykjavík og Hafnarfirði. Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari hefur valið landsliðshópinn sem mæta mun Norðmönnum. Guðmundur Bragason UMFG kemur aftur inn í hópinn eftir nokkurt hlé og þar er einnig að finna tvo leikmenn af erlendum uppruna, þá Brenton Birmingham, sem á 3 landsleiki að baki og Damon Johnson sem væntanlega mun leika sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd gegn Noregi.

Ísland og Noregur hafa leikið 39 A-landsleiki í karlaflokki frá árinu 1966. Ísland hefur sigrað í 24 af þessum leikjum, en tapað 15. Síðast mættust þjóðirnar á Norðurlandamótinu í Noregi í fyrrasumar og sigruðu Íslendingar þá með minnsta mun, 77-76. Norðmenn hafa verið í mikilli sókn upp á síðkastið og því má búast við hörkuleikjum við frændur okkar austan Atlantsála að þessu sinni, eins og svo oft áður.

Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til æfinga fyrir leikina við Noreg og Smáþjóðaleikana á Möltu:

Sverrir Þór Sverrisson Keflavík B 185 4
Gunnar Einarsson Keflavík B 188 19
Magnús Þór Gunnarsson Keflavík B 188 4
Jón Nordal Hafsteinsson Keflavík F 195 15
Damon Johnson Keflavík B/F 194 0
Friðrik Stefánsson UMFN M 203 61
Páll Axel Vilbergsson UMFG F 198 30
Guðmundur Bragason UMFG M 200 161
Sigurður Þorvaldsson ÍR F/M 200 6
Baldur Ólafsson KR M 208 32
Hlynur Bæringsson Snæfell F/M 200 1
Pálmi Freyr Sigurgeirsson Breiðablik B 190 4
Logi Gunnarsson Ulm Þýskalandi B 190 23
Jón Arnór Stefánsson Trier Þýskalandi B 195 26
Fannar Ólafsson IUP USA M 204 29
Helgi Már Magnússon Catwaba College F 198 13
Brenton Birmingham Ruiel Frakklandi B 198 3
Þjálfari Friðrik Ingi Rúnarsson
Aðst.þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Sjúkranuddari: Ísak Leifsson

Að auki voru eftirtaldir leikmenn valdir í landsliðshópinn en gáfu ekki kost á sér eða voru meiddir.

I. Magni Hafsteinsson KR
Jakob Sigurðarson Birmingham Southern
Sævar Sigurmundsson Alabama Huntsville
Helgi Jónas Guðfinnsson UMFG
Hreggviður Magnússon ÍR
Herbert Arnarson KR
Teitur Örlygsson UMFN
Páll Kristinsson UMFN

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Stjórnarmenn í körfuknattleiksdeild Hauka, þeir Ásgrímur Ingólfsson og Skúli Valtýsson, með íslandsbikarinn í kjölfar sigurs Hauka 1988.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið