© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.5.2003 | 15:34 | bl
Fyrstu kvennalandsleikirnir hér á landi í 6 ár
Dagana 23. – 25. maí nk. verða fyrstu kvennalandsleikirnir hér á landi síðan 1997, þegar norska landsliðið kemur í heimsókn og leikur þrjá leiki við okkar stúlkur. Karlalið Norðmanna kemur einnig til landsins og leikur einnig þrjá leiki við landsliðið okkar. Þessir leikir eru hugsaðir sem liður í undirbúningi liðanna fyrir Smáþjóðaleikana sem haldnir verða á Möltu í byrjun júní.

Leikirnir verða í Keflavík föstudaginn 23. maí, í Reykjavík laugardaginn 24. maí og sunnudaginn 25. maí að Ásvöllum í Hafnarfirði. Nánari dagskrá verður kynnt síðar.

Hjörtur Harðarson landliðsþjálfari kvenna hefur valið hópinn sem leika mun gegn Norðmönnum og er hann skipaður eftirtöldum stúlkum:

Nafn Félag Staða Hæð Landsleikir
Birna Valgarðsdóttir Keflavík F 180 39
Erla Þorsteinsdóttir Keflavík M 183 29
Kristín Blöndal Keflavík F 172 39
Marín Rós Karlsdóttir Keflavík B 175 14
Rannveig Randversdóttir Keflavík B 175 0
Erla Reynisdóttir Keflavík/USA B 165 22
Hanna Kjartansdóttir KR F/M 182 33
Helga Þorvaldsdóttir KR B/F 178 42
Hildur Sigurðardóttir KR B 170 19
Alda Leif Jónsdóttir ÍS B 174 26
Svandís Sigurðardóttir ÍS M 177 0
Signý Hermannsdóttir ÍS/USA M 182 12
Sólveig Gunnlaugsdóttir UMFG B/F 175 3

Að auki voru eftirtaldir leikmenn valdir í landsliðshópinn en gáfu ekki kost á sér eða eru meiddar:

Anna María Sveinsdóttir Keflavík
Svava Ósk Stefánsdóttir Keflavík
Helga Jónasdóttir UMFN
Helena Sverrisdóttir Haukar

Ísland og Noregur hafa mæst fjórum sinnum í kvennaflokki á körfuknattleiksvellinum fram að þessum þremur leikjum, sem nú eru fyrirhugaðir. Fyrsti leikur þjóðanna var á Norðurlandamótinu 1973, en á því móti fóru fram fyrstu kvennalandsleikir Íslands. Norðmenn unnu öruggan sigur þá 26-76 og sú varð einnig raunin á Norðurlandamótinu 1986, 32-112. Þriðji leikur þjóðanna var á alþjóðlegu móti í Lúxemborg árið 2000 og þá vannst fyrsti og eini sigurinn á Norðmönnum til þessa, 87-69. Síðar sama ár mættust þjóðirnar aftur á Norðurlandamótinu í Bergen og þá sigruðu Norðmenn 58-69. Ísland á því harma að hefna, en sigurinn á Norðmönnum í Lúxemborg er eini sigur kvennalandsliðsins gegn Norðurlandaþjóð til þessa.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá blaðamannafundi KKÍ í ágústmánuði 2009. Tilefnið var upphaf seinni hluta B-deildar Evrópukeppni A-landsliðs karla. Þeir Magnús Gunnarsson, Hannes S. Jónsson og Sigurð Ingimundarson sátu fyrir svörum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið