S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
27.2.2009 | 11:31 | Kristinn
Leikir í kvöld í 1. deild karla
Að Ásvöllum mætast Haukar og Hamar í toppslagnum. Sigri Hamar í kvöld eða tapa með minna en 3 stigum, þá eru þeir komnir upp í Úrvalsdeild að ári. Hamar vann fyrri leikinn með 4 stigum. Haukar þurfa hinsvegar sigur í kvöld til að eiga möguleika á 1. sætinu. Á Ísafirði mætast heimamenn í KFÍ og Ármann. KFÍ er í harðri keppni um sæti í úrslitakeppninni. Ármann þarf einn sigur til að tryggja sæti sitt í deildinni, en Höttur þarf á sama tíma að vinna alla 3 leiki sína sem eftir eru. Hrunamenn fá nágranna sína úr Þór Þorlákshöfn í heimsókn og þar eru Þór Þorlákshöfn í samkeppni um að komast í úrslitakeppnina í ár eins og KFÍ og Fjölnir. Hrunamenn eru með 10 stig eins og Ármann og ætla sér því líka sigur í kvöld. Leikur Hauka og Hamars hefst kl 20.00 en hinir leikir kvöldsins, KFÍ - Ármann og UMFH - Þór Þ. hefjast kl 19.15 |